Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 21. október 2017 08:30
Brynjar Ingi Erluson
Verratti ákvað að hafna öllum tilboðum
Marco Verratti í leik með PSG
Marco Verratti í leik með PSG
Mynd: Getty Images
Marco Verratti, miðjumaður Paris Saint-Germain í Frakklandi, hafnaði Barcelona á Spáni á sínum tíma en hann greinir frá þessu í viðtali.

Verratti, sem hefur verið partur af liði PSG frá því hann kom frá Pescara fyrir tveimur árujm síðan, er einnig búinn að vera öflugur með ítalska landsliðinu að undanförnu.

Hann hugsaði alvarlega um að yfirgefa PSG í sumar en Barcelona eltist við hann.

Kylian Mbappe-Lottin, Dani Alves og Neymar gengu allir til liðs við PSG í sumar og það varð til þess að Verratti ákvað að vera áfram.

„Ég er hreinskilinn en í fyrsta sinn hef ég ákveðið hvort ég ætti að vera hérna áfram eða ekki. Fólk heldur að ég spili fyrir PSG útaf peningunum en ég get fengið þá annars staðar," sagði Verratti.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner