Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
banner
   fös 21. nóvember 2014 20:02
Brynjar Ingi Erluson
Ancelotti: Ég myndi kaupa Messi
Carlo Ancelotti
Carlo Ancelotti
Mynd: Getty Images
Carlo Ancelotti, þjálfari Real Madrid á Spáni, myndi hafa áhuga á því að fá Lionel Messi, leikmann Barcelona, í raðir félagsins ef sá möguleiki væri í boði.

Messi hefur heldur betur verið í blöðunum að undanförnu en hann er sagður ætla að skoða sín mál eftir tímabilið hjá Barcelona.

Þessi 27 ára gamli argentínski snillingur hefur unnið verðlaunin sem besti leikmaður heims fjórum sinnum en svo virðist sem hann sé kominn með leiða hjá Börsungum.

Real Madrid er sagt hafa áhuga á að fá hann en Carlo Ancelotti myndi hiklaust vilja fá hann til félagsins.

,,Messi til Real Madrid? Öll gæðalið hafa pláss fyrir gæðaleikmenn," sagði Ancelotti er hann var spurður út í Messi.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner