Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 21. nóvember 2014 09:00
Daníel Freyr Jónsson
Heimild: Metro 
Glen Johnson til Roma í janúar?
Glen Johnson.
Glen Johnson.
Mynd: Getty Images
Bakvörðurinn Glen Johnson hefur hafnað samningstilboði Liverpool og hefur ákveðið að ganga í raðir Roma í janúarglugganum.

Þetta fullyrðir enska dagblaðið Metro og segir að Johnson hafi hafnað því að skrifa undir nýjan tveggja ára samning.

Liverpool mun hafa boðið Johnson vikulaun sem voru helmingi minni en þau sem hann er þegar á og ákvað enski landsliðsmaðurinn því að hafna tilboðinu.

Hjá Roma gæti Johnson myndað áhugavert bakvarðapar ásamt Ashley Cole, en sá gekk í raðir félagsins í sumar og leikur þar í stöðu vinstri bakvarðar.
Athugasemdir
banner