Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   fös 21. nóvember 2014 18:30
Elvar Geir Magnússon
Myndband: Sjóðheitur Sanchez fer á kostum með Síle
Þvílíkur leikmaður!
Þvílíkur leikmaður!
Mynd: Getty Images
Eftir að hafa verið í aukahlutverki hjá Barcelona hefur Alexis Sanchez verið á eldi í aðahlutverki hjá Arsenal í ensku úrvalsdeildinni.

Sjálfstraustið er í botni hjá þessum afar leikna leikmanni sem hefur einnig blómstrað með landsliði Síle.

Hann skoraði með frábærum skalla í vináttulandsleik Síle gegn Úrúgvæ í vikunni og var magnaður allan leikinn en í meðfylgjandi myndbandi er búið að klippa saman það helsta með honum.

Sannkölluð martröð fyrir úrúgvæsku varnarmennina.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner