Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   fös 21. nóvember 2014 11:07
Magnús Már Einarsson
Pardew: Perez er ekki nýr Shearer eða Cole
Ayoze Perez hefur byrjað með stæl.
Ayoze Perez hefur byrjað með stæl.
Mynd: Getty Images
Alan Pardew, stjóri Newcastle, segir að fólk megi ekki gera of miklar væntingar til framherjans Ayoze Perez þrátt fyrir góða byrjun hans í ensku úrvalsdeildinni.

Hinn 21 árs gamli Perez kom til Newcastle frá Tenerife og ekki var búist við miklu frá honum strax á fyrsta tímabili.

Perez hefur skorað þrjú mörk í þremur leikjum og í kjölfarið hefur hann fengið mikið hrós.

,,Hann er ennþá ungur. Sumar fyrirsagnir eru yfir strikið - eins og að segja að hann sé nýr Alan Shearer eða nýr Andy Cole," sagði Pardew.

,,Þetta er strákur sem hefur spilað þrjá leiki. Hinir leikmennirnir eru goðsagnir sem hafa gert þetta allt saman. Ayoze er bara að byrja að spila í ensku úrvalsdeildinni. Hann hefur staðið sig vel hingað til og ég er ánægður með hann."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner