Hægri bakvörðurinn Andreas Albech verður ekki áfram með Valsmönnum í Pepsi-deildinni næsta sumar.
Samningur Albech rann út eftir tímabilið en hann skrifaði í dag undir tveggja ára samning við Sarpsborg í norsku úrvalsdeildinni.
Albech fór til Sarpsborg á reynslu á dögunum og heillaði menn þar á bæ.

Andreas kom til Vals í júlí og skoraði tvö mörk í tólf leikjum í Pepsi-deildinni. Hann var í byrjunarliðinu í bikarúrslitaleiknum gegn ÍBV þar sem Valur sigraði 2-0.
Sarpsborg endaði í sjötta sæti í norsku úrvalsdeildinni en vinstri bakvörðurinn Kristinn Jónsson er á mála hjá liðinu.
Kristinn er vinstri bakvörður en hann átti ekki fast sæti í byrjunarliðinu á tímabilinu. Kristinn spilaði níu leiki með Sarpsborg í úrvalsdeildinni en hann kom til félagsins frá Breiðabliki í fyrra.