ÍBV hefur gert tveggja ára samning við spænska framherjann Alvaro Montejo Calleja.
Alvaro lék með Fylki síðari hluta sumars í Pepsi-deildinni og skoraði eitt mark í sjö leikjum.
Hinn 26 ára gamli Alvaro skoraði þrettán mörk í 2. deildinni með Hugin á Seyðisfirði árið 2014.
Í fyrra lék hann einnig í nokkrar vikur með Hugin og skoraði þá fjögur mörk í þremur leikjum.

Kristján Guðmundsson, þjálfari ÍBV, er að vinna í að styrkja hópinn fyrir átökin í Pepsi-deildinni næsta sumar. Í gær kom miðjumaðurinn Atli Arnarson til ÍBV frá Leikni R. og á dögunum fékk félagið færeyska kantmanninn Kaj Leó í Bartalsstovu frá FH.