Liverpool að valta yfir Sevilla
Það er kominn hálfleikur í leik Liverpool og Sevilla í Meistaradeildinni. Liverpool hefur farið léttleikandi í gegnum fyrri hálfleikinn.
Staðan í hálfleik er 3-0 fyrir Liverpool. Brasilíumaðurinn Roberto Firmino er kominn með tvö mörk og Sadio Mane er með eitt, en leikurinn fer fram á heimavelli Sevilla í Andalúsíu á Spáni.
Liverpool mun tryggja sér sigur í riðlinum með sigri í leiknum.

Mesta athygli í þessum fyrri hálfleik vakti afgreiðsla Roberto Firmino þegar hann kom Liverpool í 3-0 eftir hálftíma.
Sadio Mane kom boltanum á Firmino sem var einn á auðum sjó. Firmino fékk tíma áður en hann kom boltanum í netið og hann ákvað því að henda í svokallaða "no look" afgreiðslu.
Myndband af þessu má sjá með því að smella hér.
No look slútt hjá Firmino 👌👌👌
— Daníel Rúnarsson (@danielrunars) November 21, 2017
Firmino #nolook
— Haukur Páll (@PalliDidda) November 21, 2017
Unreal🔥 Mans just taking the piss for the bants #Firmino pic.twitter.com/UIGRe96mR9
— Murad (@FirminoR9) November 21, 2017
Athugasemdir