Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 21. nóvember 2017 05:56
Elvar Geir Magnússon
Ísland í dag - Stjarnan mætir FH í beinni á SportTv
Það er oft heitt í hamsi þegar Stjarnan og FH mætast!
Það er oft heitt í hamsi þegar Stjarnan og FH mætast!
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Annar leikur Bose mótsins fer fram í kvöld en mótið hófst um helgina þegar Breiðablik rúllaði yfir Víking R. með 8-1 sigri.

Stjarnan og FH eigast við í Kórnum klukkan 20:15 en leikurinn verður sýndur beint á SportTv.

SportTv næst á rás 13 í sjónvarpi símans og 29 í sjónvarpi Vodafone. Þá næst stöðin einnig í gegnum netið þegar horft er hér á landi.

Það má búast við skemmtilegum leik milli tveggja af bestu liðum landsins. Stjarnan hafnaði í öðru sæti Pepsi-deildarinnar í fyrra en FH endaði í þriðja sæti.

Ólafur Kristjánsson stýrir fyrsta mótsleik sínum með FH en hann var ráðinn þjálfari í Kaplakrika eftir að Heimir Guðjónsson var látinn fara.

Bose-mótið:
20:15 Stjarnan - FH (Kórinn) - SportTv

Sjá einnig:
Óli Kristjáns í viðtali í útvarpsþættinum
Athugasemdir
banner
banner
banner