Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 21. nóvember 2017 22:40
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Kane: Allir efuðust um okkur
Mynd: Getty Images
Framherjinn og markamaskínan Harry Kane var að vonum sáttur eftir 2-1 sigur Tottenham á Dortmund í Meistaradeildinni í kvöld.

Tottenham tryggði sér sigurinn í sínum riðli með því að vinna Dortmund í Þýskalandi í kvöld.

Fyrir fram bjuggust menn við því að Tottenham væri ekki að fara áfram úr riðlinum sem innihélt Real Madrid ásamt Dortmund og APOEL frá Kýpur, Tottenham væri líklega með veikara lið en Dortmund og Real Madrid, en annað kom á daginn.

„Þetta er ótrúlegt kvöld fyrir félagið og stuðningsmennina. Allir efuðust um okkur áður en riðillinn byrjaði og því var spáð að við færum ekki áfram," sagði Kane sem skoraði í kvöld.

„Þetta var stórt mark, við vissum að ef við myndum jafna þá yrði staðan góð fyrir okkur. Ég var ánægður að sjá boltann inni Son kláraði sitt færið sitt mjög vel," sagði Kane.
Athugasemdir
banner
banner