Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 21. nóvember 2017 07:30
Ívan Guðjón Baldursson
Lionel Messi má tala við önnur félög í janúar
Mynd: Getty Images
Listi leikmanna sem gætu farið á frjálsri sölu næsta sumar er ótrúlegur.

Þar er fjöldi stórstjarna og þeirra á meðal er Lionel Messi, sem er af mörgum talinn besti leikmaður sem uppi hefur verið.

Messi er ekki búinn að skrifa undir samning við Barcelona og rennur hans núverandi samningur út í lok júní.

Allar líkur eru á því að Messi skrifi undir nýjan samning, en óljóst er hversu langur hann verður.

Messi er þó langt frá því að vera eina stórstjarnan sem getur losnað undan samningi næsta sumar, því leikmenn á borð við Alexis Sanchez, Mesut Özil, Juan Mata, Leon Goretzka og Giorgio Chiellini geta rætt við önnur félög strax í janúar.




Athugasemdir
banner
banner