Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 21. nóvember 2017 19:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Pepe: Væri til í að fá Ronaldo til Besiktas
Pepe og Ronaldo.
Pepe og Ronaldo.
Mynd: Getty Images
Varnarmanninum Pepe langar að fá landa sinn og fyrrum liðsfélaga, Cristiano Ronaldo, til Besiktas í Tyrklandi.

Pepe og Ronaldo spiluðu saman hjá Real Madrid í mörg ár, en Pepe fór til Besiktas í sumar.

Pepe líkar lífið hjá Besiktas vel, en það vantar eitt til að gera það enn betra, Ronaldo.

„Ef ég fengi að velja og það væri mögulegt, þá væri ég auðvitað til í að fá Cristiano hingað," sagði Pepe í samtali við CNN. „Hann er manneskja sem ég ber gríðarlega virðingu fyrir."

„Hann er mjög venjuleg manneskja utan vallar. Fólk talar án þess að þekkja Cristiano, hann er ósköp venjuleg manneskja með venjulega siði," sagði Pepe um vin sinn.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner