Cristiano Ronaldo heldur áfram að skora í Meistaradeildinni þó hann eigi erfitt með að skora heima fyrir, á Spáni.
Ronaldo skoraði tvö mörk í 6-0 sigri á APOEL á Kýpur í kvöld er Madrídingar tryggðu sér farseðilinn í 16-liða úrslit.
Ronaldo er kominn með 18 mörk í Meistaradeildinni á árinu 2017 og er það splunkunýtt met hjá kappanum.

Ronaldo var ekki bara í því að skora í kvöld því hann lagði líka upp. Hann lagði upp fjórða markið í leiknum fyrir Karim Benzema og vakti það athygli hjá íþróttafréttamanninum Tómasi Þór Þórðarsyni.
Tómas var að lýsa leiknum á Stöð 2 Sport og var steinhissa á því þegar Ronaldo sendi boltann í góðri stöðu.
Myndband af því er hér að neðan.
OFFICIAL: @Cristiano Ronaldo becomes the first player in history to score 18 @ChampionsLeague goals in a calendar year. 😎⚽️🔥 pic.twitter.com/tUrXdZ7ecE
— SPORF (@Sporf) November 21, 2017
LOL @tomthordarson pic.twitter.com/FCeyOSz7AM
— Benedikt Bóas (@benediktboas) November 21, 2017
Athugasemdir