Newcastle fær Sunderland í heimsókn á St.James´ Park í dag í fyrri leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni.
Það er ávallt hart barist þegar þessi lið mætast enda engin vinátta á milli þessara erkifjenda. Jack Colback er í byrjunarliði Newcastle en hann yfirgaf Sunderland síðastliðið sumar og er síður en svo vel liðinn af stuðningsmönnum félagsins fyrir það en Colback er uppalinn hjá Sunderland.
Byrjunarlið Newcastle:Alnwick; Janmaat, Coloccini (c), S.Taylor, Dummett; Sissoko, Colback, Tiote; Gouffran, Perez, Ameobi.
Byrjunarlið Sunderland:Pantilimon, Vergini, Reveillere, O’Shea (c), Brown, Cattermole, Larsson, Gomez, Johnson, Wickham, Fletcher.
Athugasemdir