Jurgen Klopp, þjálfari Borussia Dortmund, nýtur stuðnings forráðamanna félagsins þrátt fyrir afleitt gengi á tímabilinu.
Klopp hefur gert frábæra hluti með Dortmund að frátöldu þessu tímabili, þar sem liðið hefur nú tapað 10 deildarleikjum. Michael Zorc, yfirmaður íþróttamála, hefur þó enn trú á þjálfaranum.
Klopp hefur gert frábæra hluti með Dortmund að frátöldu þessu tímabili, þar sem liðið hefur nú tapað 10 deildarleikjum. Michael Zorc, yfirmaður íþróttamála, hefur þó enn trú á þjálfaranum.
,,Ég og Hans-Joachim Watzke ræddum saman við Jurgen Klopp á sunnudag og fórum yfir stöðuna," sagði Zorc við Kicker.
,,Við erum sannfærðir um að við getum náð okkur úr þessari erfiðu stöðu saman."
Athugasemdir