Viðar Örn til Jiangsu Guoxin-Sainty (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Viðar Örn Kjartansson skrifaði í morgun undir þriggja ára samning við kínverska félagið Jiangsu Guoxin-Sainty.
Viðar sló í gegn með Valerenga á síðasta tímabili og varð markakóngur í Noregi.
Fjölmörg félög sýndu Viðari áhuga en Valerenga var ekki til í að leyfa Viðari að fara ódýrt.

,,Valerenga setti rosalega háan verðmiða á mig og þau lið sem höfðu mikinn áhuga frá Evrópu voru ekki tilbúin að kaupa leikmann á svona háu verði frá Noregi,\" sagði Viðar við Fótbolta.net í fyrradag.
,,Þegar kínverska liðið kom með hátt tilboð gat Valerenga ekki sagt nei við því. Ég var spurður hvort að ég hefði áhuga og ég tel að ég sé að fara í sterkari deild.\"
,,Auðvitað er draumurinn að vera í ensku úrvalsdeildinni eða eitthvað svoleiðis en þegar þetta er það eina sem er raunverulegt þá er maður ánægður með það og þetta er spennandi áskorun.\"
Sjá einnig:
Viðar Örn: Var ekki bara í mínum höndum

One more photo. pic.twitter.com/dWGAksvzol
— Jiangsu Sainty News (@saintyfc) January 22, 2015