María Þórisdóttir opnaði markareikning sinn með norska landsliðinu í 3-0 sigri á Skotum á La Manga í fyrradag.
María, sem er varnarmaður Chelsea, grínaðst með því að taka viðtal við sjálfa sig eftir leik.
„Ég náði að hanga í loftinu í 10 mínútur og svo skallaði ég inn," sagði María létt í bragði.
María, sem er dóttir Þóris Hergeirssonar landsliðsþjálfara Noregs í handbolta, verður aftur í eldlínunni í vináttuleiknum gegn Íslandi á morgun.
Hér að neðan má sjá viðtalið sem María tók við sjálfa sig.
Athugasemdir