Maicon Souza innsiglaði sigur Sao Bento gegn Sao Paulo í brasilíska boltanum síðasta miðvikudag.
Anderson Cavalo kom heimamönnum yfir og tvöfaldaði Maicon forystuna með skemmtilegu aukaspyrnumarki á lokamínútunum.
Anderson Cavalo kom heimamönnum yfir og tvöfaldaði Maicon forystuna með skemmtilegu aukaspyrnumarki á lokamínútunum.
Aukaspyrnumarkið var afar óvenjulegt og frumlegt þar sem Maicon og liðsfélagi hans stóðu á milli boltans og marksins meðan meintur spyrnumaður gerði sig tilbúinn til að taka á rás.
Enginn bjóst við því sem gerðist í kjölfarið. Maicon sneri sér við, skaut boltanum og sendi blindan markvörðinn í vitlaust horn.
Cheeky... 👀
— BigOdds (@BigOddsGB) January 22, 2018
pic.twitter.com/BFh1T8R0eb
Athugasemdir