Rúrik Gíslason sendi yfirlýsingu til fjölmiðla þess efnis að brotið hafi verið á friðhelgi einkalífs hans með kennistuldi.
Óprúttnir aðilar hafa stofnað falska reikninga á Snapchat og Tinder í hans nafni og notast við ljósmyndir af Instagram reikningi hans.
Óprúttnir aðilar hafa stofnað falska reikninga á Snapchat og Tinder í hans nafni og notast við ljósmyndir af Instagram reikningi hans.
„Hér er um alvarleg brot að ræða á friðhelgi einkalífs míns og annarra. Vegna alvarleika brotanna fól ég lögmanni mínum þegar í stað að leggja fram kæru hjá lögreglu og hefur það verið gert,“ segir meðal annars í yfirlýsingu frá Rúrik.
Rúrik hefur verið að fá lítinn spilatíma með Nurnberg í þýsku B-deildinni og var á dögunum lánaður til Sandhausen.
Rúrik á 43 leiki að baki fyrir íslenska landsliðið og vonast til að fá aukinn spilatíma hjá Sandhausen fyrir HM í Rússlandi.
Athugasemdir