Manchester United hefur staðfest að Alexis Sanchez sé orðinn leikmaður félagsins. Á sama tíma staðfesti Arsenal að Henrikh Mkhitaryan hafi farið öfuga leið.
„Ég er í skýjunum með að hafa skrifað undir hjá stærsta félagi í heimi. Ég var þrjú og hálft ár hjá Arsenal og tek með mér ákaflega jákvæðar minningar þaðan," segir Sanchez við heimasíðu Manchester United.
„Ég gat ekki hafnað því tækifæri að spila á þessum magnaða leikvangi og að spila fyrir Jose Mourinho. Ég er stoltur af því að vera fyrsti Sílemaðurinn til að klæðast treyju félagsins."

Sanchez og Mkhitaryan eru báðir 29 ára.
Mkhitaryan er armenskur landsliðsmaður og segist alltaf hafa dreymt um að spila fyrir Arsenal.
„Ég er mjög ánægður með að við gátum komist að samkomulagi og er mjög ánægður með að vera hérna. Þetta er draumur að rætast því mér hefur alltaf langað til að spila fyrir Arsenal. Nú þegar ég er kominn mun ég gera mitt allra besta fyrir félagið," segir Mkhitaryan.
Sanchez notaði Instagram reikning sinn til að senda kveðju til stuðningsmanna Arsenal en samningur hans við félagið var að renna út. Arsenal og United gerðu hrein skipti á Sanchez og Mkhitaryan.
Samkvæmt fréttum verður Sanchez með 490 þúsund pund í vikulaun hjá United. Til að setja það í samhengi þá hefur hann efni á að kaupa sér 285.712 súkkulaðistykki á degi hverjum!
🎹 Ladies and gentlemen, please take your seats. Introducing #Alexis7…#GGMU #MUFC @Alexis_Sanchez pic.twitter.com/t9RIIx4mE4
— Manchester United (@ManUtd) January 22, 2018
Love that, @HenrikhMkh - we're delighted to have you here 🔴 pic.twitter.com/PDABMfhsNx
— Arsenal FC (@Arsenal) January 22, 2018
Athugasemdir