Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Ísak Óli: FH var langfyrsti kosturinn hjá mér
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
   sun 22. febrúar 2015 20:22
Elvar Geir Magnússon
Óli Hrannar: Þurfum að slípa varnarleik liðsins
Mynd: Ingólfur Hannes Leósson
Ólafur Hrannar Kristjánsson, fyrirliði Leiknis, skoraði tvö mörk þegar liðið vann 4-2 sigur gegn Gróttu í Lengjubikarnum. Breiðhyltingar hafa fullt hús í riðlinum að loknum tveimur leikjum.

„Það gekk mjög vel í byrjun þegar við vorum að pressa þá. Svo fórum við aftar á völlinn þegar við komumst í 2-0 og þá slitnaði aðeins milli lína hjá okkur og það var ekki nægilega gott. Við gerðum betur í seinni hálfleik og stjórnuðum leiknum," sagði Ólafur.

Grótta jafnaði í 2-2 eftir að Leiknir hafði skorað tvö fyrstu mörkin en Leiknismenn kláruðu leikinn á lokakaflanum.

„Ég hafði aldrei áhyggjur af því að við myndum ekki klára þetta. Þetta voru tvö klaufaleg mörk sem við vorum að gefa þeim og þurfum að slípa varnarleikinn frá fremsta manni til þess aftasta. Við höfum nægan tíma til að laga það. En við skoruðum fjögur og unnum leikinn, við hugsum um það núna og á morgun förum við í að laga það neikvæða."

Leiknismenn eru nýliðar í Pepsi-deildinni í sumar.

„Mér lýst mjög vel á þetta. Við erum að æfa vel og við erum að slípa okkar leik betur og betur. Þetta er allt á réttri leið, þjálfararnir að gera gott mót og leikmenn einbeittir á verkefnið. Menn eru mjög spenntir en einbeittir engu að síður," sagði Ólafur en viðtalið má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner