Reglulega berast fréttir af því að Barcelona ætli að reyna að krækja í Hector Bellerín, hægri bakvörð Arsenal.
Börsungar hafa verið í vandræðum með hægri bakvarðarstöðuna síðan Dani Alves fór til Juventus. Bellerín er sagður tikka í öll box Spánarmeistarana þegar kemur að leitinni að nýjum bakverði.
Börsungar hafa verið í vandræðum með hægri bakvarðarstöðuna síðan Dani Alves fór til Juventus. Bellerín er sagður tikka í öll box Spánarmeistarana þegar kemur að leitinni að nýjum bakverði.
Bellerín er 21 árs en hann var í unglinga-akademíu Barcelona áður en hann fór til Arsenal árið 2011.
Bellerín skrifaði nýlega undir nýjan fimm ára samning við Arsenal svo það þyrfti ansi stórt tilboð frá Barcelona til að losa þennan öfluga Spánverja.
Athugasemdir