Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 22. febrúar 2017 11:00
Magnús Már Einarsson
Cannavaro: Rooney passar ekki í leikstíl okkar
Wayne Rooney.
Wayne Rooney.
Mynd: Getty Images
Fabio Cannavaro, þjálfari Tianjin Quanjian í Kína segir að félagið hafi rætt við bæði Wayne Rooney og Pierre-Emerick Aubameyang um að ganga í raðir félagsins.

„Við ræddum við Rooney og Aubameyang," sagði Cannavaro.

„Hjá Rooney var þetta bara spjall því hann passar einfaldlega ekki inn í leikstíl okkar. Við þurftum ekki að ræða meira við hann."

„Sannleikurinn er sá að við höfum rætt meiar við Aubameyang. Því miður hafnaði Borussia Dortmund tilboði okkar því að félagið þarf á honum að halda í Meistaradeildinni."


Rooney hefur verið orðaður við félög í Kína undanfarið en Sky Sports sagði fyrr í dag að leikmaðurinn fari ekki neitt áður en félagaskiptaglugginn lokar þar í næstu viku.
Athugasemdir
banner
banner