Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 22. febrúar 2017 22:04
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
Championship: Fulham með mikilvægan sigur
Tom Cairney innsiglaði sigur Fulham
Tom Cairney innsiglaði sigur Fulham
Mynd: Getty Images
Bristol City 0 - 2 Fulham
0-1 Lucas Piazon ('17 )
0-2 Tom Cairney ('55 )

Einn leikur fór fram í Championship deildinni í kvöld og var það Íslendingaliðin Bristol City og Fulham sem mættust

Því miður komu Íslendingarnir ekkert við sögu í leiknum. Ragnar Sigurðsson var ekki í leikmannahópi Fulham og Hörður Björgvin Magnússon sat allan tímann á varamannabekk Bristol.

Fulham komst yfir á 17. mínútu þegar Lucas Piazon skoraði.

Tom Cairney tvöfaldaði forystu Fulham á 55. mínútu og urðu mörkin ekki fleiri.

Stigin þrjú voru mikilvæg fyrir Fulham og komust þeir upp í 7. sæti deildarinnar og eru þeir nú 6 stigum á eftir umspilssæti.

Það gengur hins vegar lítið upp hjá Bristol þessa dagana og eru þeir aðeins 2 stigum frá fallsæti.
Athugasemdir
banner
banner
banner