Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 22. febrúar 2017 20:10
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
Mourinho telur að Mkhitaryan missi af úrslitaleiknum
Mourinho var sáttur með sigurinn
Mourinho var sáttur með sigurinn
Mynd: Getty Images
Jose Mourinho var ánægður með 1-0 sigurinn hjá Manchester United á Saint-Etienne í 32-liða úrslitum Evrópudeildarinnar í kvöld.

Liðið verður því í pottinum er dregið verður í 16-liða úrslit á föstudag.

Henrikh Mkhitaryan skoraði eina mark leiksins en hann fór stuttu seinna útaf vegna meiðsla og er Mourinho hræddur um að það sé of stuttur tími fyrir Mkhitaryan til að ná sér fyrir úrslitaleikinn í deildabikarnum á sunnudag.

Meiðslin gætu hins vegar hleypt Wayne Rooney inn í byrjunarliðið en hann hefur verið orðaður frá félaginu.

„Markið drap alla von fyrir þá. En við vildum samt vinna leikinn. Ég vill alltaf ná í bestu úrslitin," sagði Mourinho.
Athugasemdir
banner
banner
banner