Franck Kessie er ekki leikmaður sem allir kannast við en hann er tvítugur Fílabeinstrendingur og leikur með Atalanta í ítölsku úrvalsdeildinni.
Chelsea og Manchester United hafa bæði verið á eftir leikmanninum og er hann hissa á þeim orðrómum. Þá er Roma einnig á eftir Kessie.
Kessie er samningsbundinn við Atalanta til ársins 2021 en hann hefur skorað 7 mörk í 21 leik á þessu tímabili.
„Mér líkar vel við ensku úrvalsdeildina og sérstaklega Manchester United. Félag sem mig dreymir um að spila fyrir."
„Chelsea? Það er einnig stór klúbbur, enginn myndi neita þeim, en mig dreymir um Manchester United,"
Athugasemdir