Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 22. febrúar 2018 18:30
Magnús Már Einarsson
Fjórar í Þrótt R. (Staðfest)
Þróttur fær liðsstyrk.
Þróttur fær liðsstyrk.
Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski
Þróttur R. hefur fengið fjóra nýja leikmenn fyrir baráttuna í 1. deild kvenna í sumar.

Hildur Egilsdóttir, Dagmar Pálsdóttir, Kolbrún Ýr Karlsdóttir og Ellie Jane Leek hafa allar fengið leikheimild með Þrótti að undanförnu.

Hildur kemur frá Fram, Dagmar frá Víkingi og Kolbrún Ýr frá Selfossi.

Ellie kemur frá enska liðinu Bristol City en hún á m.a. að baki nokkra landsleiki með yngri landsliðum Wales.

„Þróttarar binda mikla vonir við þennan liðsstyrk og stefnan að sjálfsögðu sett á að gera enn betur en á síðasta tímabili þegar Þróttur varð í 3.sæti deildarinnar," segir á Instagram síðu Þróttar.
Athugasemdir
banner
banner