Hallbera Guðný Gísladóttir var maður leiksins er Valur vann KR í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins.
Hallbera skoraði og lagði upp í leiknum og vann Valur á endanum 3-1.
Hallbera skoraði og lagði upp í leiknum og vann Valur á endanum 3-1.
„Þetta var dálítið erfið fæðing. Ég veit ekki hvort við höfum verið þreyttar við vorum í erfiðu ferðalagi á sunnudaginn, veðurtepptar til fjögur um nóttina. Við vorum töluvert betri í seinni en fyrri," sagði Hallbera eftir sigurinn.
„Maður er farinn að færa sig framar á völlinn. Það var gaman að skora, það er ekki oft sem ég skora."
Hallbera virðist geta hlaupið upp og niður vænginn heilu leikina án vandræða og segist geta bætt formið sitt enn frekar.
„Ég er í fínu formi en ég á alveg helling inni, það er ennþá bara febrúar. Ég hef alltaf getað hlaupið mikið í gegnum árin, það er gott að geta það ennþá."
Hallbera segist vera spennt fyrir komandi sumri með Val og segir uppáhaldsmatinn sinn að sjálfsögðu vera Wok On.
„Það er mjög gaman að vera komin heim, það er góður andi í hópnum og mjög efnilegar stelpur þannig þetta verður spennandi sumar."
Athugasemdir