Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 22. febrúar 2018 09:10
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Myndband: Fred með aukaspyrnumark - Var Guardiola að fylgjast með?
Hefur verið sterklega orðaður við Man City.
Hefur verið sterklega orðaður við Man City.
Mynd: Getty Images
Brasilíumaðurinn Fred gerði fallegt mark er hann tryggði Shakhtar Donetsk flottan sigur á Roma í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í gærkvöldi.

Markið var glæsilegt en hann kom Shakhtar í 2-1 með því. Í marki Roma var landi Fred, Alisson, sem hefur verið orðaður við Liverpool, en hann kom engum vörnum við.

Vísir.is hefur birt myndband af markinu.

Smelltu hér til að sjá markið og allt það helsta úr leiknum í gærkvöldi.

Fred þessi hefur verið sterklega orðaður við Manchester City og þykir líklegt að hann muni fara þangað í sumar. Ætli Pep Guardiola, stjóri Man City, hafi verið að fylgjast með í gær?

Shakhtar D 2 - 1 Roma
0-1 Cengiz Under ('41 )
1-1 Facundo Ferreyra ('52 )
2-1 Fred ('71 )
Athugasemdir
banner
banner
banner