Öll ensku liðin eru enn í fínum möguleika eftir fyrri leiki 16-liða úrslita Meistaradeildarinnar, sérstaklega Liverpool og Manchester City sem slátruðu sínum andstæðingum og eru liðin svo gott sem alveg örugg áfram. Goal setti saman úrvalslið þessarar umferðar.
#1 David de Gea (Manchester United) - Að margra mati besti markvörðu heims og hann sýndi af hverju í leiknum gegn Sevilla.
#3 Vincent Kompany (Manchester City) - Þegar Belginn er heill er hann frábær varnarmaður og hann var það í 4-0 sigrinum gegn Basel.
#4 Virgil van Dijk (Liverpool) - Skoraði hátt í öllum töfræðiþáttum varnarlega í 5-0 útisigrinum gegn Porto.
#5 Marcelo (Real Madrid) - Brassinn var hörkuöflugur gegn PSG og skoraði þriðja mark Madrídarliðsins.
#6 Ilkay Gundogan (Manchester City) - Hefur ekki getað látið ljós sitt skína almennilega vegna meiðsla en gegn Basel sýndi Gundogan hverju hann býr yfir.
#7 N'Golo Kante (Chelsea) - Hélt Lionel Messi niðri stærstan hluta leiksins en gat ekkert gert þegar Argentínumaðurinn fékk mark á silfurfati eftir stór mistök.
#9 Willian (Chelsea) - Skaut tvívegis í tréverkið áður en hann náði að skora í þriðju tilraun gegn Börsungum.
#10 Robert Lewandowski (Bayern München) - Skoraði tvívegis þegar Bæjarar unnu 5-0 sigur gegn Besiktas.
Athugasemdir