Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 22. mars 2015 05:55
Brynjar Hafþórsson
England í dag - Liverpool mætir Man Utd
Það verður spennandi dagur í Enska boltanum í dag með þrem leikjum.

Mikil eftirvænting er fyrir stórleik helgarinnar þar sem að Liverpool tekur á móti Manchester United á Anfield kl 13:30. Liðin eru í hörku baráttu um sæti í Meistaradeild Evrópu á næsta tímabili og má hvorugt liðið við því að misstíga sig.

Chelsea sækja lærisveina Steve Bruce í Hull heim kl. 16:00 og er ljóst að José Mourinho mun ekki sætta sig við neitt minna en þrjú stig.

Queens Park Rangers mæta Everton á Loftus Road kl. 16:00 þar sem að bæði lið þurfa nauðsynlega á stigum að halda í fallbaráttunni.

Leikir dagsins:
13:30 Liverpool - Manchester United Beint á Stöð 2 Sport 2
16:00 Hull City - Chelsea Beint á Stöð 2 Sport 2
16:00 Queens Park Rangers - Everton Beint á Stöð 2 Sport 3
Athugasemdir
banner
banner