Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   sun 22. mars 2015 14:51
Arnar Geir Halldórsson
Kolbeinn í byrjunarliði Ajax
Kolbeinn að komast á ról
Kolbeinn að komast á ról
Mynd: Fotbolti.net - Ómar Vilhelmsson
Kolbeinn Sigþórsson er í byrjunarlið Ajax í dag þegar liðið fær ADO Den Haag í heimsókn á Amsterdam ArenA.

Þetta er fyrsti leikur Kolbeins í byrjunarliði síðan í desember en hann hefur glímt við meiðsli undanfarnar vikur.

Ajax er í 2.sæti deildarinnar, 12 stigum á eftir toppliði PSV og þarf á sigri að halda til að eygja smá von í titilbaráttunni.

Leikurinn hefst klukkan 15:45.

Byrjunarlið Ajax:Jasper Cillessen, Ricardo van Rhijn, Joel Veltman, Niklas Moisander, Nick Viergever, Davy Klaassen, Lucas Andersen, Thulani Serero, Kolbeinn Sigthorsson, Ricardo Kishna, Lasse Schoene.

Athugasemdir
banner
banner
banner