Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 22. mars 2015 13:50
Arnar Geir Halldórsson
Lengjubikar: KR gerði jafntefli á Akureyri
Gary Martin var á skotskónum á Akureyri
Gary Martin var á skotskónum á Akureyri
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KA 2-2 KR
1-0 Sjálfsmark (´4)
2-0 Elfar Árni Aðalsteinsson ('26)
2-1 Þorsteinn Már Ragnarsson (´45)
2-2 Gary Martin ('75)

KR-ingar héldu norður yfir heiðar í dag og léku við KA á gervigrasvelli þeirra KA-manna í sól og blíðu.

Heimamenn byrjuðu betur og komust yfir eftir aðeins fjögurra mínútna leik. Húsvíkingurinn Elfar Árni Aðalsteinsson tvöfaldaði forystuna eftir tæplega hálftíma leik. Undir lok hálfleiksins minnkaði Þorsteinn Már Ragnarsson muninn fyrir KR-inga.

KR-ingar sóttu án afláts í seinni hálfleik og uppskáru jöfnunarmark þegar Gary Martin skoraði með marki beint úr aukaspyrnu á 75.mínútu.
Athugasemdir
banner
banner
banner