Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 22. mars 2017 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Áfrýjun Huddlestone hafnað - Missir af þremur leikjum
Mynd: Getty Images
Tom Huddlestone fékk rautt spjald í tapleik gegn Everton og ákvað Hull City að áfrýja spjaldinu.

Enska knattspyrnusambandið ákvað að viðhalda leikbanninu og missir miðjumaðurinn því af næstu leikjum gegn West Ham, Middlesbrough og Manchester City.

Huddlestone fékk rautt spjald á 73. mínútu á Goodison Park en Marco Silva, stjóri Hull, var langt frá því að vera sáttur að leikslokum og taldi miðjumann sinn ekki verðskulda rauða spjaldið.

Hull er í 18. sæti ensku Úrvalsdeildarinnar, þremur stigum frá öruggu sæti.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner