„Þeir eru mun betri en fólk heldur kannski. Þeir eru með marga góða leikmenn í góðum liðum," segir Ari Freyr Skúlason, vinstri bakvörður íslenska landsliðsins, um leikinn gegn Kosóvó á föstudag.
„Þeir eru með unga stráka sem ég þekki frá því í Svíþjóð. Þeir geta valdið usla og ef við leyfum þeim að gera það sem þeir vilja þá geta þeir tekið þrjú stigin."
„Þeir eru með unga stráka sem ég þekki frá því í Svíþjóð. Þeir geta valdið usla og ef við leyfum þeim að gera það sem þeir vilja þá geta þeir tekið þrjú stigin."
Leikurinn fer fram í Albaníu en stuðningsmenn Kosóvó munu fjölmenna og láta vel í sér heyra. „Það verður vonandi stemning þarna. Þetta er blóðheitt land og þetta verður örugglega eitthvað,"
Ari Freyr á stóran aðdáendahóp í ítalska bænum Pieve di Cento. Þegar íslenska liðið æfði í Parma í nóvember þá mættu aðdáendur að horfa á æfingu. Íslenska landsliðið hefur æft í Parma í þessari viku en aðdaéndur Ara hafa ekki látið sjá sig að þessu sinni.
„Ég veit ekki hvar þeir eru. Ætli þeir séu ekki heima hjá sér. Þeir vita kannski ekki af þessu," sagði Ari.
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir