Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 22. mars 2017 19:00
Ívan Guðjón Baldursson
Ashley Cole hlær ennþá að Arsenal
Ashley Cole leikur nú fyrir LA Galaxy í MLS deildinni.
Ashley Cole leikur nú fyrir LA Galaxy í MLS deildinni.
Mynd: Getty Images
Ashley Cole segist ekkert sjá eftir því að hafa farið úr Arsenal yfir til erkifjendanna í Chelsea á sínum tíma.

Cole skipti yfir árið 2006, tvöfaldaði laun sín og var í kjölfarið uppnefndur Cashley.

„Ég naut mín í botn hjá Arsenal, ég saknaði samherjanna þegar ég fór yfir til Chelsea en þar vann ég alla titla sem voru í boði," sagði Cole.

„Ég get ekki sagt að ég sjái eftir félagsskiptunum, ég hugsa enn þann dag í dag um slæmt gengi Arsenal undanfarinn áratug og hlæ.

„Ég fór kannski ekki rétt að hlutunum í kringum félagsskiptin en það voru aðrir aðilar sem fóru rangt að, mér var sýnd mikil vanvirðing."

Athugasemdir
banner
banner
banner