Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 22. mars 2017 14:24
Ívan Guðjón Baldursson
Byrjunarlið Englands í kvöld: Keane og Livermore byrja
Michael Keane byrjar sinn fyrsta A-landsleik í kvöld.
Michael Keane byrjar sinn fyrsta A-landsleik í kvöld.
Mynd: Getty Images
Gareth Southgate er búinn að tilkynna byrjunarlið Englands sem mætir Þýskalandi í vináttuleik í kvöld.

Leikurinn hefst klukkan 19:45 og verður spilaður á Signal Iduna Park, heimavelli Borussia Dortmund.

Southgate ætlar að nota þriggja manna varnarlínu, sem hefur verið að virka vel fyrir Antonio Conte og lærisveina hans í Chelsea, sem trónir á toppi ensku Úrvalsdeildarinnar með tíu stiga forystu.

Jamie Vardy byrjar fremstur gegn Þjóðverjum og er með Adam Lallana og Dele Alli sér til aðstoðar.

Jake Livermore byrjar á miðjunni ásamt Eric Dier og sjá Kyle Walker og Ryan Bertrand um kantana.

England (3-4-2-1):
Joe Hart
Gary Cahill
Michael Keane
Chris Smalling
Kyle Walker
Eric Dier
Jake Livermore
Ryan Bertrand
Adam Lallana
Dele Alli
Jamie Vardy



Athugasemdir
banner
banner