„Það var mjög góð æfing í gær, það tóku allir þátt í henni og allir skiluðu því sem við bjuggumst við," segir aðstoðarlandsliðsþjálfarinn Helgi Kolviðsson.
Allir í íslenska landsliðshópnum eru klárir í slaginn fyrir leikinn mikilvæga gegn Kosóvó sem fram fer á föstudagskvöld.
Allir í íslenska landsliðshópnum eru klárir í slaginn fyrir leikinn mikilvæga gegn Kosóvó sem fram fer á föstudagskvöld.
Hópurinn hefur æft á Ítalíu en flýgur í dag yfir til Albaníu þar sem leikurinn fer fram á föstudag.
„Það er langt ferðalag frá flugvellinum og á hótelið svo það er mikilvægt að klára ferðadaginn í dag svo menn fái góðan svefn og góða æfingu á morgun. Við getum nýtt hana til að venjast vellinum," segir Helgi.
Arnar Bill Gunnarsson, fræðslustjóri KSÍ, hefur leikgreint lið Kosóvó og hélt hann fyrirlestur fyrir íslenska hópinn í gær. Helgi segir að það verði alls ekkert vanmat í íslenska liðinu.
„Arnar Bill var með frábæra kynningu á Kosóvó í gær, við töluðum um það hvernig við gætum farið að ýmsum hlutum. Við reynum að koma öllum upplýsingum til leikmanna og þeir eiga að vita að hverju þeir ganga. Ég held að það sé ekkert vanmat í gangi."
Viðtalið má sjá í heild í sjónvarpinu hér að ofan en þar tjáir Helgi sig nánar um lið Kosóvó.
Fótbolti.net er með öflugt teymi í Hollandi og er hægt að fylgjast með öllu bak við tjöldin á Snapchat (Fotboltinet), á Instagram og öðrum samskiptamiðlum okkar.
Leikir Íslands á EM:
Ísland 0-1 Frakkland
Ísland 1-2 Sviss
Ísland 0-3 Austurríki
Athugasemdir