Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   mið 22. mars 2017 16:29
Magnús Már Einarsson
Íslenska U21 liðið gerði tífalda skiptingu
Eyjólfur gerði tífalda skiptingu.
Eyjólfur gerði tífalda skiptingu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
U21 árs landslið Íslands er þessa stundina að spila vináttuleik við Georgíu.

Á 63. mínútu leiksins gerði Eyjólfur Sverrisson, þjálfari, tífalda skiptingu.

Allir leikmenn Íslands fóru þá af velli nema Sindri Kristinn Ólafsson markvörður.

Staðan í leiknum þegar þetta er skrifað er 2-1 fyrir Georgíu en Viktor Karl Einarsson skoraði mark Íslands.

Þessi sömu lið mætast aftur í Georgíu á laugardag og í næstu viku leikur íslenska liðið síðan vináttuleik við Sádi-Arabíu á Ítalíu.

Smelltu hér til að horfa á leikinn í beinni



Byrjunarlið Íslands
Sindri Kristinn Ólafsson
Alfons Sampsted
Hans Viktor Guðmundsson
Axel Óskar Andrésson
Sindri Scheving
Júlíus Magnússon
Ásgeir Sigurgeisson
Viktor Karl Einarsson
Tryggvi Hrafn Haraldsson
Albert Guðmundsson
Jón Dagur Þorsteinsson

Komu inn á 63. mínútu
Aron Ingi Kristinsson
Birnir Snær Ingason
Hörður Ingi Gunnarsson
Orri Sveinn Stefánsson
Ari Leifsson
Ægir Jarl Jónasson
Grétar Snær Gunnarsson
Kristófer Konráðsson
Arnór Gauti Ragnarsson
Steinar Þorsteinsson
Athugasemdir
banner
banner