Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   fim 23. mars 2017 17:15
Magnús Már Einarsson
Neymar myndi velja Coutinho til Barcelona
Neymar í leik með Barcelona.
Neymar í leik með Barcelona.
Mynd: Getty Images
Neymar myndi vilja fá landa sinn Philippe Coutinho til Barcelona ef hann mætti velja einn leikmann úr ensku úrvalsdeildinni.

Coutinho hefur verið í lykilhlutverki hjá Liverpool undanfarin ár en hann og Neymar þekkjast vel úr brasilíska landsliðinu.

„Sá leikmaður sem ég myndi vilja fá úr enksu úrvalsdeildinni til Barcelona er Coutinho," sagði Neymar.

„Ég tel að Philippe Coutinho sé leikmaður sem myndi passa fullkomlega inn hjá Barcelona."
Athugasemdir
banner
banner