Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 22. mars 2017 06:00
Magnús Már Einarsson
Rakel í Fylki (Staðfest) - Eva Ýr framlengir
Rakel Leósdóttir.
Rakel Leósdóttir.
Mynd: Fylkir
Sóknarmaðurinn Rakel Leósdóttir er komin til Fylkis frá Val en hún hefur samið til tveggja ára.

Rakel er fædd árið 1999 en hún spilaði með KH í 1.deild síðasta sumar þar sem hún skoraði sex mörk í þrettán leikjum.

Hún á að baki einn leik með U-17 ára landsliði Íslands.

Markvörðurinn Eva Ýr Helgadóttir framlengdi í vikunni samning sinn við Fylki út tímabilið 2018.

Eva er efnilegur markvörður, fædd 1996 og hefur spilað 25 leiki með meistaraflokki Fylkis en hún er uppalin hjá félaginu. Eva hefur spilað einn leik fyrir U-17 ára landslið Íslands.
Athugasemdir
banner
banner