mið 22. mars 2017 20:30
Ívan Guðjón Baldursson
Zlatan: Fæ aukið adrenalín þegar ég spila gegn Pep
Mynd: Getty Images
Zlatan Ibrahimovic og Pep Guardiola störfuðu saman hjá Barcelona fyrir tæpum áratugi síðan.

Þeim kom alls ekki vel saman og fór Zlatan til AC Milan eftir eitt tímabil með Börsungum.

„Þegar ég spila gegn liðinu hans fæ ég auka adrenalín og meiri kraft. Mér finnst það ekki skrítið miðað við það sem gerðist á milli okkar," sagði Zlatan við Fox Sports Italia.

„Ég nota þessa orku á jákvæðan hátt frekar en neikvæðan, en þetta er samt eitthvað sem er alltaf falið í hausnum á mér.

„Til að byrja með var allt í góðu en svo allt í einu gerðist eitthvað, sem ég veit ekki hvað er, og ég fékk ekki að spila. Þetta er eitthvað sem gerðist í fortíðinni, og ég er maður sem lítur til framtíðarinnar."

Athugasemdir
banner
banner