Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
   fim 22. mars 2018 16:30
Hafliði Breiðfjörð
Santa Clara
Arnór Ingvi: Mun láta til skarar skríða aftur
Icelandair
Arnór Ingvi á landsliðsæfingu í gær.
Arnór Ingvi á landsliðsæfingu í gær.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Maður er enn að ná tímamismuninum en þetta er mjög gaman," sagði Arnór Ingvi Traustason við Fótbolta.net í gær en hann er með landsliðinu í Bandaríkjunum þar sem liðið mætir Mexíkó og Perú á næstu dögum.

„Ég hef ekki spilað við lið úr þesari heimsálfu áður og það verður bara gaman. Þeir spila öðruvísi, eru blóðheitir og pressa hátt og út um allan völl. Það verður gott fyrir undirbúninginn fyrir HM að fá að spila á móti Suður Ameríkuþjóð núna og að spila á móti Gana í júní."

Arnór Ingvi er að fara inn í sitt fyrsta tímabil með Malmö í Svíþjóð og skoraði í bikarleik gegn Östersund um daginn.

„Ég er búinn að byrja síðustu tvo leiki eftir meiðsli og búinn að leggja upp og skora. Ég er mjög ánægður og ætla bara að byggja ofan á það. Ég ætla mér að vera byrjunarliðsmaður, það er alveg klárt."

„Mér líkar mjög vel í Svíþjóð, ég var þarna áður í tvö og hálft ár og líkaði mjög vel við fólkið og tungumálið. Mér líður eins og ég sé heima. Ég vil fá stöðugleika í ferilinn minn og byggja mig aftur upp. Svo læt ég til skarar skríða aftur, ég vil ná lengra og sjá hvert ég kemst. Þetta er ekkert endastöð hjá mér."

Athugasemdir
banner
banner
banner