Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
Finnst línan vera óskýr - „Þeir máttu það í dag“
Alltaf skemmtilegustu leikirnir - „Ég er með eitraða hægri löpp"
Hinrik Harðar: Mikil ábyrgð að vera kominn í ÍA
Rúnar Páll: Það er það sem Fylkir gengur út á
Jón Þór: Vil byrja mótið 1. mars
Amanda: Markmiðið er að fara aftur út en fókusinn er á Val
Jóhann Kristinn: Mér fannst við ekki komast yfir spennuna
Haddi: Meira svekktur með frammistöðuna en að hafa fengið á okkur mark
Pétur: Allt öðruvísi en gegn Víkingum
Fyrirliðinn ánægður með fyrsta sigurinn - „Þvílíkur bónus að koma marki inn í lokin"
   fim 22. mars 2018 08:30
Elvar Geir Magnússon
Santa Clara
Birkir Már: Ekki eins mikil umbreyting og fólk heldur
Icelandair
Birki Már á landsliðsæfingu í San Jose í gær.
Birki Már á landsliðsæfingu í San Jose í gær.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Ég hélt að maður myndi sleppa við rok og svona, en það er bara það sama!" sagði bakvörðurinn Birkir Már Sævarsson á landsliðsæfingu í Kaliforníu í gær.

Það var skýjað og smá vindur meðan á æfingunni stóð en liðið er að búa sig undir tvo vináttulandsleiki, gegn Mexíkó á föstudagskvöld og svo gegn Perú í næstu viku.

„Þetta er skemmtilegt og spennandi verkefni. Það er gaman að mæta svona liðum sem við erum ekki vanir að mæta. Þetta eru virkilega góð lið."

Eftir leikinn gegn Perú, sem fram fer á heimavelli San Francisco 49ers, verður langt flug til New York þar sem leikurinn gegn Perú fer fram. Þessi vináttuleikjaferð er góð upphitun fyrir Rússland.

„Þetta líkist því sem við erum að fara í. Það er annað tímabelti, langt flug og góðir andstæðingar sem við mætum. Það er svona svipað."

Birkir Már snéri aftur til Vals í vetur. Er ekki furðulegt að vera að taka þátt í Lengjubikarnum vitandi að HM sé framundan?

„Það er náttúrulega svolítið spes en ef ég væri í Svíþjóð þá væri ég í svipuðum pakka. Þetta er ekki eins mikil umbreyting og fólk heldur."

Talað var um að mögulegt væri að Birkir færi á lán erlendis fyrir HM en hann segir að það séu litlar líkur á því að það gerist.

Sjáðu viðtalið í heild í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner