Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 22. mars 2018 19:46
Ívan Guðjón Baldursson
Byrjunarlið U21 gegn Írlandi
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Íslenska landsliðið skipað leikmönnum fæddum 1996 og síðar er að spila æfingaleik við írska jafnaldra sína.

Strákarnir okkar eru að hita upp fyrir mikilvægan keppnisleik gegn Norður-Írum í undankeppni EM 2019.

Ísland er með sjö stig eftir fimm fyrstu umferðirnar. Spánverjar tróna á toppnum með fullt hús stiga á meðan Norður-Írar eru í öðru sæti, þremur stigum fyrir ofan Ísland.

Byrjunarlið Íslands gegn Írum er afar tilraunakennt og er meðalaldurinn undir tvítugu, þar sem langflestir eru fæddir árið 1999.

Ísland:
Aron Snær Friðriksson
Grétar Snær Gunnarsson
Felix Örn Friðriksson
Ari Leifsson
Aron Már Brynjarsson
Orri Sveinn Stefánsson
Stefan Alexander Ljubicic
Kristófer Ingi Kristinsson
Kolbeinn Birgir Finnsson
Guðmundur Andri Tryggvason
Arnór Sigurðsson
Athugasemdir
banner
banner