Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
Jökull: Þeir voru frábærir - Við áttum kannski ekkert skilið úr þessum leik
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
   fim 22. mars 2018 15:32
Orri Rafn Sigurðarson
Freysi: Okkur langar til þess að koma upp hátíð í haust
Icelandair
Freyr í landsliðsverkefni.
Freyr í landsliðsverkefni.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Næstu þrír leikir eru lykilleikir.
Næstu þrír leikir eru lykilleikir.
Mynd: Fotbolti.net - Anna Þonn
Í dag tilkynnti Freyr Alexandersson, landsliðsþjálfari, landsliðshóp Íslands sem mun mæta Slóveníu 6. apríl og Færeyjum 10. apríl næstkomandi. Báðir leikirnir eru í undankeppni HM.

Freyr gerir nokkrar breytingar á liðinu frá því á æfingarmótinu á Algarve en má þar helst nefna að framherjinn Harpa Þorsteinsdóttir er í hópnum að þessu sinni.

„Við fækkum hópnum um þrjár frá því í Portúgal og svo eru Elín Metta og Harpa tilbúnar að koma til baka og ég vil fá þær inn í hópinn núna því þær hafa einfaldlega gert mikið fyrir okkur síðustu ár, segir Freyr.

Þær Berglind Björg Þorvaldsdóttir og Katrín Ásbjörnsdóttir hafa verið fastamenn í landsliðinu en Freyr valdi þær ekki að þessu sinni

„Berglind og Katrín áttu ekki sitt besta mót í Portúgal sóknarlega en ég veit nákvamlega hvað þær geta og þær eiga helling inni báðar tvær. Þær munu sanna sig í leikjunum í vor og upphafi sumars fyrir næsta hóp sem er valinn."

Selma Sól Magnúsdóttir, leikmaður Breiðabliks. átti frábært mót út í Algarve og spilaði sig inn í hópinn

„Selma er fyrst og síðast bara góður knattspyrnumaður og hefur hæfileika til að spila margar leikstöður en hún mun fyrst og síðast leysa vængbakvarðastöðuna."

Freyr segir næstu þrjá leiki í undankeppni vera þrjú skref í átt að markmiðinu, að komast á HM.

Við vitum af því að ef við fáum níu stig úr þessum leikjum þá verða úrslitaleikir hér við Tékkland og Þýskaland heima."

Markmiðið er skýrt hjá landsliðinu.

„Okkur langar til þess að koma upp hátíð í haust gegn þessum þjóðum um það að komast á heimsmeistararmótið. Við erum í þeirri stöðu," segir Freyr, en það er ljóst að ef kvenna landsliðið nær í níu stig úr þessum þremur leikjum munu fara fram hreinir úrslitaleikir um þáttökurétt á HM gegn Þýskalandi og Tékkland hér heima í gryfjunni okkar Laugardalsvelli.

Sjá einnig:
Landsliðshópurinn: Harpa snýr aftur
Athugasemdir
banner
banner