Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 22. mars 2018 20:36
Ívan Guðjón Baldursson
Lengjubikar kvenna: ÍA byrjar á sigri
Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir
Álftanes 0 - 4 ÍA
0-1 Maren Leósdóttir ('7)
0-2 Unnur Elva Traustadóttir ('48)
0-3 Sigrún Eva Sigurðardóttir ('69)
0-4 Fríða Halldórsdóttir ('75)

Skagastelpur byrjuðu Lengjubikarinn af krafti er þær heimsóttu Álftnesinga í C-deildinni fyrr í kvöld.

Maren Leósdóttir gerði eina mark fyrri hálfleiksins og tvöfaldaði Unnur Elva Traustadóttir forystuna snemma í síðari hálfleik.

Sigrún Eva Sigurðardóttir gerði þriðja markið áður en Fríða Halldórsdóttir rak síðasta naglann í kistuna.

Þetta var fyrsti leikur beggja liða í bikarnum, en Þróttur R. er á toppi riðilsins með fjögur stig eftir tvær umferðir.

Markaskorarar af urslit.net
Athugasemdir
banner
banner
banner