Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 22. mars 2018 17:10
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Myndband: Ísland verður að passa að Messi geri þetta ekki
Icelandair
Stórkostlegur fótboltamaður.
Stórkostlegur fótboltamaður.
Mynd: Getty Images
Lionel Messi er ótrúlegur fótboltamaður, það vita allir.

Messi er þessa stundina í landsliðverkefni með Argentínu en liðið er að fara að spila vináttulandsleiki gegn Ítalíu og Spáni í undirbúningi sínum fyrir HM þar sem Króatía, Nígería og Ísland bíða í riðlakeppninni.

Fyrsti leikur Messi og félaga í mótinu verður gegn Íslandi í Moskvu þann 16. júní.

Ef Ísland ætlar að fá eitthvað út úr þessum fyrsta leik á HM þá verður Messi að vera í strangri gæslu. Hann má alls ekki gera það sem hann gerði á æfingu með argentíska landsliðinu í gær. Hann fékk þá boltann á miðjunni og fór illa með nokkra varnarmenn áður en hann skoraði. Myndband af þessu er hér að neðan.

Það er hægara sagt en gert að stöðva þennan töframann en Ísland verður að finna leið til þess.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner