Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 22. mars 2018 17:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
U17 kvenna með glæsilegan sigur í fyrsta leik
Sveindís Jane gerði sigurmarkið.
Sveindís Jane gerði sigurmarkið.
Mynd: Fótbolti.net: Eyjólfur Garðarsson
Ísland 2 -1 Írland
1-0 Karólína Lea Vilhjálmsdóttir, víti
1-1 Emily Whelan
2-1 Sveindís Jane Jónsdóttir

U17 ára landslið kvenna mætti Írlandi í dag og var um hörkuleik að ræða. Leikurinn var fyrsti leikur liðsins í milliriðli Evrópumótsins 2018, en leikið er í Þýskalandi.

Á heimasíðu KSÍ segir að jafnræði hafi verið með liðunum fyrstu mínúturnar. Íslenska liðið átti hættulegar sóknir en fyrsta mark leiksins kom þegar fyrirliðinn Karólína Lea Vilhjálmsdóttir skoraði úr vítaspyrnu á 23. mínútu.

Staðan var 1-0 fyrir Ísland í hálfleik en seinni hálfleikurinn fór ekki vel af stað fyrir íslenska liðið og jafnaði Emily Whelan fyrir þær írsku eftir fimm mínútur í honum.

Áfram var jafnræði með liðunum og skiptust þau á að sækja en Ísland ógnaði meira, sem fyrr. Á 69. mínútu kom Sveindís Jane Jónsdóttir, leikmaður Keflavíkur, Íslandi í 2-1 með góðu marki og reyndist það sigurmarkið í leiknum.

Í hinum leik riðilsins mættust Þýskaland og Aserbaídsjan og þar vann þýska liðið 5-0 sigur. Næsta umferð milliriðilsins er á sunnudag og þá mætir Ísland gríðarlega sterku liði Þýskalands í leik sem hefst kl. 13:00 að íslenskum tíma.
Athugasemdir
banner
banner
banner