Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 22. mars 2018 20:23
Ívan Guðjón Baldursson
Vinnur tvær milljónir ef barnabarnið spilar fyrir England
Mynd: Getty Images
Trevor Burlingham vinnur 17 þúsund pund, eða 2.4 milljónir íslenskra króna, ef barnabarn hans kemur við sögu með enska landsliðinu á næstu fimm árum.

Burlingham hefur lengi haft trú á barnabarni sínu. Það eru þrjú ár liðin síðan hann veðjaði 500 pundum á að strákurinn myndi spila A-landsleik fyrir 26. afmælisdaginn.

Barnabarnið sem um ræðir er Lewis Cook, 21 árs miðjumaður Bournemouth sem er í landsliðshópi Englendinga fyrir æfingaleiki gegn Hollandi og Ítalíu á næstu dögum.

Cook hefur áður verið kallaður upp í landsliðshópinn en aldrei fengið að koma við sögu.

Cook hefur leikið 43 leiki fyrir yngri landslið Englands og var fyrirliði U20 landsliðsins sem vann Heimsmeistaramótið í fyrra.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner